Upplifunin er mikilvægust

Rósbjörg og Eyþór Ívar segja að upplifun sé góð leið …
Rósbjörg og Eyþór Ívar segja að upplifun sé góð leið fyrir atvinnugreinar til að koma nýsköpun á framfæri. Hún gerist þó ekki af sjálfu sér, hana þurfi að hanna. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Ef þig hefur einhvern tímann dreymt um að verða leiðtogi í upplifunarhönnun, er tækifærið komið, því ráðgjafarfyrirtækið Akademias í Borgartúni 23 býður nú upp á námskeið í því að „efla aðferðafræði við mótun upplifana á Íslandi“, eins og það er útskýrt á heimasíðu fyrirtækisins. Fyrsti hluti af sex hefst 19. október.

Að námskeiðinu standa Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Cognitio, og Eyþór Ívar Jónsson, ráðgjafi og eigandi Akademias, en þau hafa fengið til liðs við sig ýmsa vel þekkta aðila úr ýmsum áttum.

Gerist ekki af sjálfu sér

Hann bætir við að upplifun gerist ekki af sjálfu sér, hana þurfi að hanna. „Við fáum inn fólk úr listum, viðskiptum og þessum viðburðaheimi, til að koma saman og ræða hvað upplifun er í þessu samhengi, frá ólíkum sjónarhornum.“

Rósbjörg segir að upplifun sé góð leið fyrir ýmsar atvinnugreinar til að koma nýsköpun sinni á framfæri. En til að upplifunin komist til skila, þarf ýmislegt að koma saman, eins og framsetning, samsetning, góð saga og umgjörð.

Eyþór segir sem dæmi að bæjarfélag sem þarf að ná athygli ferðamanna gæti notfært sér upplifunarhönnun í þeim tilgangi. „Bæjarfélagið þarf að finna hvaða upplifun það er sem fær ferðamanninn til að koma og eyða tíma á staðnum.“

Bláa lónið er gott dæmi um aðila sem notað hefur upplifunarhönnun með framúrskarandi hætti, að sögn Eyþórs. „Þar veltu menn því fyrir sér hvaða sögu þeir vildu segja, hver upplifunin ætti að vera af heimsókn í lónið. Það er stór hluti af góðum árangri fyrirtækisins. Upplifunin skilar sér beint í verðmætasköpuninni.“

Eins og Rósbjörg minntist á hér á undan skiptir sagan sem sögð er miklu máli. Ef til dæmis á að nota upplifunarhönnun til að búa til góða ráðstefnu, þá verði að einblína á hvað sá sem mætir á ráðstefnuna fær fyrir sinn snúð. Að þar sé að finna einhverja sérþekkingu, sem eflir viðkomandi, fyrirtækið eða samfélagið í heild sinni.

Fengu besta fólkið

Eins og sagði hér á undan kemur fjöldi þekktra einstaklinga að námskeiðinu. „Við vorum svo heppin að fá besta fólkið í landinu með okkur í lið, til að segja hvernig það býr til upplifanir. Þar má nefna kvikmyndaframleiðandann Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndatónskáldið Veigar Margeirsson, Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, og Pál Óskar Hjálmtýsson tónlistarmann.“

Þau Eyþór og Rósbjörg leituðu einnig út fyrir landsteinana, en Írarnir Patrick Delaney og Pádraic Gilligan frá Soolnua kenna á námskeiðinu. „Þeir eru einna áhrifamestu sérfræðingarnir á þessu sviði í heiminum í dag. Þeir hafa til dæmis verið að hjálpa áfangastöðum að byggja sig upp, og einnig unnið með fyrirtækjum og heilu atvinnugreinunum.“

Rósbjörg segir að núna, þegar atvinnulífið sé í hægagangi vegna kórónuveirufaraldursins sé gott að nota tímann til að efla starfsfólk, og undirbúa viðburði næsta árs. „Ísland hefur svo margt fram að færa, og það að bjóða enn sterkari upplifun er eitthvað sem gæti til dæmis eflt okkur sem áfangastað.“

Eyþór er samhliða störfum sínum í Akademias framkvæmdastjóri fyrir ráðstefnur hjá European Academy of Management. Hann segir að nú þegar færa þarf ráðstefnur á netið, sé fólk gjarnt á að halda að hægt sé að yfirfæra ráðstefnuna beint þar yfir. „Auðvitað áttu ekki að hugsa þannig, heldur þarf að hugsa um hvað viðskiptavinurinn vilji fá á þessu sniði. Horfa þarf á tæknina og sníða upplifunina að henni.“

Rósbjörg telur að þegar faraldrinum lýkur, muni ráðstefnuhald í heiminum fara aftur af stað, en þó með breyttu sniði. Hún telur að flestar ráðstefnur verði með blendingssniði (e. Hybrid), þ.e. bæði í sal og á neti. „Það verður áskorun, að sníða upplifunina að báðum aðilum, þeim sem eru heima hjá sér og þeim sem eru á staðnum.“

Námskeiðið Leiðtogi í upplifunarhönnun verður einmitt haldið með blönduðu sniðið, bæði á netinu og í húsakynnum Akademias. 35 komast að og því þarf að hafa hraðar hendur að skrá sig, enda hefur námskeiðið nú þegar fengið góð viðbrögð að sögn Eyþórs, en skráning fer fram á akademias.is.

Leiðbeinendur
» Sigurjón Sighvatsson
» Patrick Delaney
» Pádraic Gilligan
» Veigar Margeirsson
» Páll Óskar Hjálmtýsson
» Leifur Welding
» Halla Helgadóttir
» Hlín Helga Guðlaugsdóttir
» Katrín Ólína Pétursdóttir
» Sigurður Þorsteinsson
» Rósbjörg Jónsdóttir
» Heimir Sverrisson
» Eyþór Ívar Jónsson
» Guðmundur Arnar Guðmundsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK