Viðurkenna að hafa brotið í bága við samskiptareglur

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Drífa Snædal, forseti ASÍ. Samsett mynd

Icelandair, Flugfreyjufélag Íslands, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að allir hluteigandi aðilar séu sammála um að fara eftir leikreglum og lögum á íslenskum vinnumarkaði.

Icelandair og SA viðurkenna þar með að hafa brotið í bága við samskiptareglur á vinnumarkaði með ákvörðun um að segja upp öllum flugfreyjum í FFÍ og hafa sagst ætlað að semja við annað stéttarfélag. SA studdi ákvörðun Icelandair sem tekin var í júlí.

Í tilkynningu ASÍ til fjölmiðla segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, að „í nýafstaðinni kjaradeilu beitti Icelandair, með stuðningi SA, brögðum sem hafa ekki sést á Íslandi áratugum saman en þekkjast víða erlendis og hafa það að markmiði að brjóta niður stéttarfélög og samstöðu launafólks“.

Undir yfirlýsinguna rita svo Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Berglind Hafsteinsdóttir, formaður FFÍ, og Drífa Snædal, forseti ASÍ. 

Yfirlýsingin í heild sinni:

Sameiginleg yfirlýsing Icelandair Group, Samtaka atvinnulífsins, Flugfreyjufélags Íslands og Alþýðusamband Íslands

Aðilar eru sammála um að lögmæt og rétt viðbrögð atvinnurekenda og stéttarfélaga í erfiðum og langdregnum kjaradeilum eigi að fara eftir þeim leikreglum og lögum sem gilda í samskiptum aðila vinnumarkaðar og sem koma fram í lögum nr. 80/1938.

Þau viðbrögð Icelandair, með stuðningi SA, þegar félagið taldi vonlaust að ná árangri í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands, að segja upp öllum starfandi flugfreyjum og flugþjónum þann 17.7.2020 eru hörmuð enda ekki í samræmi við þær góðu samskiptareglur sem aðilar vinnumarkaðarins vilja viðhafa. Icelandair telur nauðsynlegt fyrir framtíð félagsins að virða stéttarfélög og sjálfstæðan samningsrétt starfsfólks síns sem tryggir frið um starfsemi félagsins á gildistíma kjarasamninga og á meðan leitað er lausna í kjaraviðræðum.

Aðilar munu leggja sig fram um að halda góðu samstarfi  og munu leggja sitt af mörkum til þess að endurvinna og efla traust sín í milli.


Með yfirlýsingu þessari eru aðilar sammála um að með henni ljúki öllum deilum milli þeirra um þá atburði sem áttu sér stað í samskiptum þeirra þann 17.7 2020 og mun hvorugur aðila gera kröfur á hinn vegna þeirra.

 

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK