Bein útsending: Iðnþing 2020

Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel og formaður Samtaka iðnaðarins.
Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel og formaður Samtaka iðnaðarins. Ljósmynd/Aðsend

Iðnþing Samtaka iðnaðarins 2020 fer fram í dag á milli 13:00 og 14:30. Yfirskrift þingsins í ár er „nýsköpun er leiðin fram á við.“ Þingið verður sent út beint og má meðal annars fylgjast með því í spilaranum hér að neðan.

Auk erinda frá forsvarsfólki samtakanna mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flygja ávarp og þá verða umræður þar sem sex stjórnendur úr íslensku atvinnulífi fara yfir stöðuna.

Í tilkynningu kemur fram að kastljósinu verði beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.

Dagskrá

  • Fundarstjórn – Logi Bergmann
  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Áskorun um fjölgun nýrra starfa – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
  • Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Umræður – Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI, Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV, Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Á milli dagskrárliða er vitnað til orða nokkurra forkólfa í íslenskum iðnaði. 
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK