Gunnar Dofri og Sverrir til Sorpu

Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson hafa verið ráðnir sem …
Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson hafa verið ráðnir sem sérfræðingar til Sorpu. Samsett mynd

Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson hafa verið ráðnir til Sorpu á skrifstofu framkvæmdastjóra, sem var stofnuð í kjölfar skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu nýlega.

Tekur Gunnar Dofri við nýju starfi sérfræðings í samskiptum og samfélagsvirkni. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Í starfinu felist meðal annars samskipti við fjölmiðla, markaðsmál, fræðsla- og kynningarmál, ritstjórn á vef fyrirtækisins og samfélagsmiðlum auk stefnumótunar og áætlanagerðar. 

Sverrir tekur við nýju starfi sérfræðings í innkaupum. Í starfinu felast meðal annars ábyrgð á stefnumótun í innkaupum og sölu á vettvangi Sorpu ásamt þróun og innleiðingu verklags er varðar innkaup og sölu. Sverrir hefur auk þess yfirumsjón með samningum og áhættugreiningu og utanumhald um upplýsingatækni birgja.

Gunnar Dofri er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem blaðamaður og samfélagsmiðlastjóri á Morgunblaðinu og mbl.is, fréttamaður á fréttastofu RÚV, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Gunnar er auk þess í meistaranámi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Sverrir er vörustjórnunarfræðingur frá Háskóla Reykjavíkur með yfir 20 ára reynslu á sviði vörustjórnunar. Hann hefur starfað sem innkaupastjóri hjá Valitor, verkefnastjóri innkaupa hjá Isavia, í viðskiptastýringu Origo, framkvæmdarstjóri innflutnings og dreifingarsviðs Opinna kerfa sem og innkaupastjóri Opinna kerfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK