Jóhann ráðinn markaðsstjóri hjá Sjóvá

Jóhann Þórsson.
Jóhann Þórsson. Ljósmynd/Aðsend

Jóhann Þórsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Sjóvá. Jóhann hefur víðtæka reynslu af stjórnun markaðsmála. Hann var markaðsstjóri Dohop frá 2014-2017, markaðsstjóri Wedo (Heimkaup, Hópkaup og Bland.is) 2017-2018 og hefur starfað sem vefstjóri og sérfræðingur í stafrænum miðlum í markaðsdeild Sjóvá frá ársbyrjun 2019.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Jóhann er með BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í lífupplýsingafræði frá Royal Holloway, University of London.

Jóhann er kvæntur Heiði Hrund Jónsdóttur, félagsfræðingi við HÍ og saman eiga þau tvö börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK