Gildi nú stærsti hluthafi Icelandair

Gengið var frá nokkrum stórum viðskiptum eftir að listi Icelandair um 20 stærstu hluthafa í félaginu var birtur síðdegis í dag. Því var listinn leiðréttur af félaginu rétt í þessu og er hann nú birtur með fyrirvara um breytingar. 

Fjárfestar eru minntir á að hlutir sem skráðir eru á fjármálafyrirtæki sem sinna milligöngu í verðbréfaviðskiptum kunna að innihalda hluti sem tilheyra viðskiptavinum þeirra. Eigin hlutir slíkra fjárfesta í bréfum Icelandair Group kunna því að vera umtalsvert færri en listinn gefur til kynna. Þetta á einkum við um Landsbankann hf. sem uppgjörsaðila nýafstaðins hlutafjárútboðs félagsins“, segir í tilkynningu frá Icelandair. 

Landsbankinn fimmti stærstur en var stærstur

Lífeyrissjóðurinn Gildi er nú skráður sem stærsti hluthafi í félaginu en fyrr í dag var birtur listi þar sem Landsbankinn var skráður stærsti hluthafinn. Hann er nú sá fimmti stærsti

Hér fer list­inn yfir tutt­ugu stærstu hlut­haf­ana í fé­lag­inu, ásamt fjölda hluta í þeirra eigu og eign­ar­hlut­falli, eins og hann leit út klukkan 17:00 í dag, 30. september. Listinn er, eins og áður sagði, birtur með fyrirvara um breytingar:

  • Gildi - lífeyrissjóður - 1.878.761.301 - 6,61%
  • Íslandsbanki hf. - 1.861.289.959 - 6,55%
  • Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild - 1.773.730.661 - 6,24%
  • Brú Lífeyrissjóður - 1.356.204.675 - 4,77%
  • Landsbankinn hf. - 1.236.727.905 - 4,35%
  • Lífeyrissjóður verslunarmanna - 642.361.239 - 2,26%
  • Stefnir - ÍS 15 - 568.483.644 - 2,00%
  • Kvika banki hf. - 562.522.643 - 1,98%
  • Sólvöllur ehf. - 554.704.375 - 1,95%
  • Par Investment Partners L.P. - 543.881.750 - 1,91%
  • Landsbréf - Úrvalsbréf - 536.232.220 - 1,89%
  • Almenni lífeyrissjóðurinn - 524.402.218 - 1,84%
  • Arion banki hf. - 517.852.380 - 1,82%
  • Stefnir - ÍS 5 - 505.853.032 - 1,78%
  • Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild - 498.697.144 - 1,75%
  • Stefnir - Samval - 452.000.000 - 1,59%
  • Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda - 397.177.554 - 1,40%
  • Birta lífeyrissjóður - 383.553.804- 1,35%
  • Stapi lífeyrissjóður - 295.507.966 - 1,04%
  • Eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna - 293.861.670 - 1,03%
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK