Isavia tapaði 7,6 milljörðum á fyrri hluta ársins

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia mbl.is/Eggert Jóhannesson

Isavia tapaði samtals 7,6 milljörðum króna á fyrri hluta ársins, samanborið við 2,5 milljarða tap á sama tímabili í fyrra. Inn í upphæðinni í fyrra var 1,9 milljarða niðurfærsla vegna falls WOW air. Tekjusamdráttur móðurfélagsins, sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar, var upp á 97%, en ef horft er til allra félaga samstæðunnar var samdrátturinn 77%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Tekjur félagsins á fyrri hluta þessa árs námu 8,6 milljörðum króna. Rekstrartap fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT)  var 5,3 milljarðar og heildarafkoman sem fyrr segir neikvæð um 7,6 milljarða. Handbært fé Isavia er 16,2 milljarðar og eigið fé er upp á 32,8 milljarða og eiginfjárhlutfallið 38,1%.

Haft er eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, í tilkynningunni að afkoman beri veruleg merki af áhrifum kórónuveirunnar. „Við höfum gripið til umfangsmikilla aðgerða til að mæta þessum áhrifum og höfum m.a. því miður neyðst til þess að segja upp fjölda starfsmanna hjá móðurfélaginu og í Fríhöfninni ásamt því að skerða starfshlutföll starfsmanna hjá samstæðunni. Við búum okkur undir að flugumferð fari jafnvel ekki af stað á ný fyrr en í lok fyrsta ársfjórðungs næsta árs.”

Segir Sveinbjörn að afkomuspá félagsins geri ráð fyrir að heildarafkoma samstæðunnar verði neikvæð um 13-14 milljarða króna á árinu og að heildaráhrif kórónuveirunnar geti numið 15-16 milljörðum.

Hann telur félagið þó standa vel þrátt fyrir þetta. „Aftur á móti er sjóðstaða félagsins sterk og við ráðum við að vera tekjulaus á Keflavíkurflugvelli fram á næsta vor án þess að sækja viðbótar fjármögnun. Við gerum þó ráð fyrir í okkar áætlunum að sækja nýtt fjármagn inn í félagið til að geta viðhaldið okkar umsvifum til næstu ára.“ 

Sveinbjörn er auk þess bjartsýnn á framtíðina hjá félaginu og ferðaþjónustu á Íslandi: „Ferðamenn munu að okkar mati sækja heim  áfangastaði sem bjóða upp víðáttu og hreinleika, þannig að við teljum að Ísland verði eftirsóttur áfangastaður þegar flug hefst á ný. Við sjáum líka mikil tækifæri til að styrkja samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar sem tengiflugvallar milli Evrópu og Norður-Ameríku. Þá má ekki gleyma því að það flugfélag sem hefur nýtt flugvöllinn sem tengiflugvöll tryggði sér nýverið mikilvæga fjármögnun. Þó að staðan núna sé afar krefjandi megum við ekki missa sjónar á þeim miklu möguleikum sem við höfum til framtíðar,” er haft eftir Sveinbirni í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK