Ferðaþjónustan muni ekki jafna sig 2021

Flugfreyjur Qatar Airways í Sydney í Ástralíu. Flugfélög, og þar …
Flugfreyjur Qatar Airways í Sydney í Ástralíu. Flugfélög, og þar með starfsfólk þeirra, hafa farið illa út úr faraldrinum. AFP

Komum alþjóðlegra ferðamanna á heimsvísu fækkaði um 70 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins 2020 vegna kórónuveirufaraldursins. Alþjóðaferðamálastofnunin (WTO) greindi frá þessu í dag en stofnunin spáir því að ferðamannaiðnaðurinn á heimsvísu muni ekki ná að jafna sig fyrir árslok 2021. 

Eins og Íslendingar urðu varir við eyðilagðist háannatímabil í ferðamannaiðnaðnum á norðurhveli jarðar þetta árið, hvað varðar alþjóðlega ferðamenn. Þeim fækkaði um 81% í júlí og 79% í ágúst.

Átta sinnum stærra tap en í efnahagshruninu

Komur farþega til landa á heimsvísu voru 700 milljónum færri frá janúar til ágúst samanborið við sama tímabil ári áður. Tapið sem af því hlaust hleypur á 730 billjónum dala. Er um að ræða tap sem er meira en átta sinnum stærra en tapið sem varð í kjölfar efnahagshrunsins á fyrsta áratug þessarar aldar. 

„Þessi ófyrirsjáanlegi samdráttur hefur dramatísk áhrif á efnahag þjóða sem og verulegar félagslegar afleiðingar. Hann setur milljónir í hættu á að missa lífsviðurværi sitt,“ sagði Zurab Poloikashvili, framkvæmdastjóri WTO, í yfirlýsingu.

Mestur varð samdrátturinn í Asíu en þar skall faraldurinn fyrst á. Komum ferðamanna til landsins fækkaði um 79% á fyrstu átta mánuðum ársins. 69% færri ferðamenn fóru til Afríku og Mið-Austurlanda, 68% færri til Evrópu og 65% færri til Ameríku. 

WTO spáir því að komur alþjóðlegra ferðamanna muni á heimsvísu dragast saman um 70% á árinu 2020 í heild sinni. Ferðamannaiðnaðurinn mun, að mati stofnunarinnar, ekki jafna sig fyrir árslok 2021. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK