Birgir lætur af störfum hjá Íslandspósti

Birgir Jónsson.
Birgir Jónsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu og hafa hann og stjórn félagsins gengið frá samkomulagi um starfslokin.

Birgir hóf störf hjá Póstinum í byrjun júní 2019 og hefur frá þeim tíma ásamt stjórn og nýju stjórnendateymi stýrt félaginu í gegnum mikið og farsælt umbreytingaferli, að því er segir í tilkynningu. 

Gegnir starfi forstjóra þar til eftirmaður hefur verið ráðinn

„Tekist hefur að treysta rekstrargrundvöll fyrirtækisins og skapa því sterkari stöðu til framtíðar. Þá hefur þjónusta Póstsins verið bætt og aukin. Fram undan eru áframhaldandi krefjandi og ný verkefni hjá Íslandspósti en Birgir mun gegna starfi forstjóra þar til eftirmaður hans hefur verið ráðinn,“ segir ennfremur. 

„Stjórn Íslandspósts þakkar Birgi fyrir góð störf en margt hefur áunnist í rekstri Íslandspósts frá því hann tók við starfinu. Birgir hefur verið öflugur starfsmaður sem hefur leitt umbreytingaferli hjá fyrirtækinu, skapað góða liðsheild og starfsanda. Stjórn félagsins þakkar Birgi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Fram undan eru krefjandi verkefni í stefnumótun og við að bæta enn frekar þjónustu hjá Íslandspósti,“ segir Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts. 

Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri Íslandspósts og það hefur verið sannur heiður að fá að takast á við þetta krefjandi verkefni með þessum öfluga hópi starfsmanna um land allt. Næstu skref hjá mér eru óráðin en ég fer frá borði fullur þakklætis fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni og ég hlakka mikið til að sjá Póstinn blómstra sem aldrei fyrr í höndunum á öllu því góða fólki sem þar starfar,“ er svo haft eftir Birgi í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK