Sameina fjölda ferðaþjónustufyrirtækja

Raufarhólshellir er hluti af sameiningu.
Raufarhólshellir er hluti af sameiningu. Lava Tunnel

Eldey og Kynnisferðir hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaga í eignasafni Eldeyjar og Kynnisferða. Við það sameinast rekstur Kynnisferða, Arcanum Fjallaleiðsögumanna, Logakórs og Sportköfunarskóla Íslands, auk þess sem sameinað félag mun verða minnihlutaeigandi í Íslenskum Heilsulindum, Lava Center og Raufarhólshelli. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Með sameiningunni verður til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Markmið sameiningarinnar er að gera samrunaaðila betur í stakk búna fyrir öfluga viðspyrnu greinarinnar þegar ferðalög hefjast af fullum þunga, með auknum krafti í sölu- og markaðsstarfi,“ segir í tilkynningunni. 

Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og munu samrunaaðilar ekki tjá sig frekar um viðskiptin meðan á málsmeðferð stendur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK