EASA segir MAX-vélarnar öruggar

Boeing 737 MAX-flugvél frá flugfélaginu United Airlines í nóvember síðastliðnum.
Boeing 737 MAX-flugvél frá flugfélaginu United Airlines í nóvember síðastliðnum. AFP

Yfirmaður Flugöryggismálastofnunar Evrópusambandsins, EASA, segist vera „handviss“ um að flugvélar Boeing, 737 MAX, geti núna flogið örugglega um loftin blá.

Patrick Ky, forstöðumaður EASA, sagði að stofnunin hans hefði „velt við hverjum steini“ er hún yfirfór þessa flugvélategund og rannsakaði þær breytingar á hönnun vélanna sem framleiðandi þeirra gerði, að sögn BBC.

Flugvélarnar voru kyrrsettar í mars á síðasta ári eftir tvö mannskæð flugslys þar sem alls 346 manns fórust.

Grænt ljós hefur þegar verið gefið í Bandaríkjunum og í Brasilíu á að vélarnar fari í loftið. EASA reiknar með því að veita samskonar leyfi í Evrópu um miðjan janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK