Icelandair selur og flytur af Nauthólsvegi

Icelandair hefur selt Reitum skrifstofuhúsnæði að Nauthólsvegi. Í sama húsi …
Icelandair hefur selt Reitum skrifstofuhúsnæði að Nauthólsvegi. Í sama húsi er Reykjavík Natura-hótelið. mbl.is/Ómar Óskarsson

Icelandair Group skrifaði í dag undir samning við fasteignafélagið Reiti um sölu á skrifstofuhúsnæði félagsins að Nauhólsvegi 50 við Reykjavíkurflugvöll. Söluverðið er tæplega 2,3 milljarðar króna og verður nýtt til uppgreiðslu áhvílandi láns á fasteigninni sem og til styrkingar lausafjárstöðu.

Icelandair mun þó leigja húsnæðið af Reitum til þriggja ára eða til loka árs 2023 og verður starfsemi félagsins enn í húsinu á því tímabili.

Að svo búnu mun félagið flytja starfsemi sína frá Nauthólsvegi á Flugvelli í Hafnarfirði þar sem félagið er nú þegar með hluta starfseminnar. Stefnir félagið að því að byggja við núverandi húsnæði á Flugvöllum svo að sameina megi starfsemi félagsins í Reykjavík og Hafnarfirði á einum stað, þ.e. í Hafnarfirði.

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu að með sölunni nái félagið fram rekstrarhagræðingu og styrki lausafjárstöðu sína en hvort tveggja komi sér vel á þessum krefjandi tímum. 

„Þá er spennandi að hefja uppbyggingu á nýjum höfuðstöðvum sem munu taka mið af þörfum starfseminnar nú og til framtíðar og mun reynsla okkar af sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi á þessu ári án efa nýtast við skipulag og hönnun húsnæðisins. Ég tel að sameining starfsstöðva okkar á höfuðborgarsvæðinu muni án efa stuðla að öflugra samstarfi milli deilda, meiri starfsánægju og auknum árangri. Það verður jafnframt ótvíræður kostur að færa höfuðstöðvar félagsins nær Keflavíkurflugvelli,“ segir Bogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK