Sylvía frá Icelandair til Origo

Sylvía Kristín Ólafsdóttir tekur sæti í framkvæmdastjórn Origo.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir tekur sæti í framkvæmdastjórn Origo. Ljósmynd/Aðsend

Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Sylvía kemur frá Icelandair þar sem hún hefur verið forstöðumaður leiðakerfisins.

Sylvía hefur starfað fyrir Landsvirkjun þar sem hún var deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði og fyrir Amazon í Evrópu, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur.

Sylvía er með M.Sc. próf í Operational Research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt stundakennslu við verkfræðideild HÍ í rekstrarfræði, kvikum kerfislíkönum og verkefnastjórnun (MPM). Sylvía situr einnig í stjórn Ölgerðarinnar og Símans.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að hlutverk Sylvíu hjá Origo verði að styrkja og gera vöru- og lausnarframboð félagsins skýrara, vinna að þróun kjarnamarkaða og efla vörumerki Origo. Hún mun hefja störf í mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK