Kristinn ráðinn framkvæmdastjóri hjá HS Orku

Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku.
Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku.

Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Segir í fréttatilkynningu að Kristinn hafi áður starfað sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá Orku náttúrunnar en fyrir það í 14 ár sem framkvæmdastjóri hjá Alcoa bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. 

Kristinn er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá DTU í Danmörku auk B.Sc.-gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands. 

„Það er mikið gleðiefni að fá Kristin til liðs við HS Orku. Hann er gríðarlega reynslumikill stjórnandi með víðfeðma þekkingu á rekstri. Hann kemur með ferska sýn á verkefnin og ég er sannfærður um að hann mun reynast okkur öflugur liðsstyrkur,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, í fréttatilkynningu.  

Kristinn mun koma til með að stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljótiað því er segir í fréttatilkynningu.  

Kristinn er kvæntur Hildi Briem og saman eiga þau þrjú börn.  

„HS Orka hefur verið leiðandi í framleiðslu á endurnýjanlegri orku í 45 ár. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu á sínu sviði. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk einnar vatnsaflsvirkjunar í Brúará í Tungufljóti. Fyrirtækið er að hefja vinnu við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW,“ segir í tilkynningu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK