Hlutafé Isavia aukið um 15 milljarða

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn. Hlutafjáraukningunni er ætlað að mæta rekstrartapi vegna Covid-19 og gerir hún félaginu kleift að hefja vinnu við uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli á ný. 

Ljóst er að ákvörðunin um að auka hlutafé í Isavia skapar fjölda nýrra starfa á framkvæmdatímanum, þar með talið strax á þessu ári, að því er félagið greinir frá í tilkynningu. 

Það er gríðarlega mikilvægt að við verðum reiðubúin þegar flugumferð verður orðin álíka og fyrir heimsfaraldur. Fram að því getum við ráðist í framkvæmdir sem miða að því að gera Keflavíkurflugvöll samkeppnishæfari en áður. Það skilar sér til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem starfa á flugvellinum, og ferðaþjónustunnar í heild,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningunni.

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veitir svigrúm til að mæta mismunandi sviðsmyndum

„Það er ljóst að við hjá Isavia getum lítið gert til að hafa áhrif á það hvenær ferðatakmörkunum í heiminum verður aflétt en við getum haft mikil áhrif á það hvernig okkur reiðir af á komandi árum. Það má ekki gleyma því að hlutafjáraukningin veitir okkur líka svigrúm til að mæta mismunandi sviðsmyndum út úr COVID-19 og á sama tíma auðvelda flugfélögum að hefja flug á ný þegar þar að kemur, m.a. með markaðsstuðningi. Okkur er falin mikil ábyrgð að sinna einum af lykilinnviðum landsins og við ætlum okkur að standa undir þeirri ábyrgð,“ segir hann ennfremur.  

Framkvæmdum verði að fullu lokið 2025

Fyrirhuguðum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli er ætlað að styrkja samkeppnishæfni flugvallarins og tengistöðvarinnar með því að bæta þjónustu við viðskiptavini, bæta aðstöðu flugvéla og farþega, stytta afgreiðslutíma og auka þannig afköst og skilvirkni hans. Áætlanir gera ráð fyrir að þeim framkvæmdum, sem fyrirhugað er að ráðast í að svo stöddu verði að fullu lokið árið 2025 að sögn félagsins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK