Laki Power fær 335 milljóna styrk

Óskar H. Valtýsson stofnandi Laka Power og Þórdís Kolbrún Reykfjörð …
Óskar H. Valtýsson stofnandi Laka Power og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra nýsköpunarmála. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Laki Power, sem þróar og framleiðir tæki til þess að fylgjast með ástandi háspennulína, hefur hlotið 2,1 milljóna evra styrk, jafnvirði um 335 milljóna króna, frá Evrópusambandinu til að þróa tæknina áfram og efla sölu- og markaðsstarf á erlendum mörkuðum.

Styrkurinn er hluti af sérstökum stuðningi Evrópusambandsins við nýsköpun þar sem markmiðið er að styrkja þau fyr­ir­tæki sem eiga mesta möguleika á að vaxa á alþjóðlegum mörkuðum. Laki Power er eitt af 38 fyrirtækjum í Evrópu sem hljóta styrkinn eftir strangt matsferli, en alls bár­ust yfir 4,200 umsókn­ir. Frá þessu er greint í tilkynningu frá félaginu.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnu- og nýsköpunarráðherra, afhenti Óskari H. Valtýssyni, stofnanda Laka Power, nýlega stuðningsbréf frá íslenskum stjórnvöldum sem á að auðvelda sókn á erlenda markaði.

Laki Power var stofnað árið 2015 til að þróa uppfinningu Óskars H. Valtýssonar á tæknibúnaði sem er hengdur upp á háspennulínur og fylgist nákvæmlega með ástandi þeirra. Tæknin gerir fyrirtækjum sem annast flutning og dreifingu raforku kleift að hafa nákvæmt eftirlit með ísingu, eldi og umferð fólks við línurnar í rauntíma. Úrvinnsla gagnanna fer fram í skýjalausnum sem Laki Power hefur hannað og mun nú leggja áherslu á að þróa enn frekar með tilkomu styrksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK