Origo hlaut tilnefningu Microsoft

Björgólfur Guðbjörnsson, forstöðumaður hjá Origo, og teymið hans hafa unnið …
Björgólfur Guðbjörnsson, forstöðumaður hjá Origo, og teymið hans hafa unnið að Bankamiðjunni. Ljósmynd/Aðsend

Origo hefur hlotið tilnefningu á Microsoft Partner-verðlaununum 2021 fyrir Bankamiðjuna, lausn sem auðveldar notendum viðskiptakerfa að eiga samskipti við ólíka bankaþjónustu.

Slíkar tengingar hafa áður verið háðar annmörkum, flóknar í uppsetningu og kostnaðarsamar í útfærslu fyrir notendur viðskiptakerfa og aðra notendur bankaþjónustu, að því er segir í tilkynningu. 

„Bankamiðjan er í takt við áherslur okkar í Origo að þróa virðisaukandi og einfaldar hugbúnaðarlausnir fyrir þá stafrænu umbreytingu sem á sér stað hjá viðskiptavinum okkar. Það má líkja lausninni við millistykki sem einfaldar samskipti viðskiptakerfa við bankastofnanir sem gerir það að verkum að viðhald viðskiptakerfa og uppfærslur verður einfaldara. Viðhald sérlausna í viðskiptahugbúnaði, svo sem SAP og Business Central, verður hagkvæmara þar sem ekki þarf að aðlaga lausnirnar að fjölbreyttu umhverfi ytri kerfa og stofnana,“ segir Björgólfur Guðbjörnsson, forstöðumaður hjá Origo.

Björgólfur segir að ávinningurinn sé minni kostnaður, minna flækjustig, aukinn viðbragðsflýtir og lausnin styðji við stafræna vegferð fyrirtækja.

„Hjá Origo vinna um 200 hugbúnaðarsérfræðingar sem leggja áherslu á að þróa lausnir sem skapa virði fyrir samfélagið. Þessi tilnefning er okkur mikil hvatning og sýnir að íslensk hugbúnaðargerð er í fremstu röð,“ segir Björgólfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK