Beint: Staða og þróun á húsnæðismarkaði

Hafnarfjörður. Á húsnæðisþinginu verður farið yfir stöðu og þróun á …
Hafnarfjörður. Á húsnæðisþinginu verður farið yfir stöðu og þróun á húsnæðismarkaði. mbl.is/Sigurður Bogi

Hver er staðan og framtíðarþróun á húsnæðismarkaði hér á landi? Þetta er meðal þess sem farið verður yfir á árlegu húsnæðisþingi félagsmálaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS)  sem fer fram á milli 13 og 15 í dag.

Mun HMS einnig fara yfir nýja skýrslu stofnunarinnar um stöðu og þróun á markaðinum, en á þinginu verður einnig fjallað um ný úrræði HMS til að bregðast við húsnæðisþörf almennings. Rætt verður við sveitarstjórnarfólk og byggingaraðila auk þess umræður verða í pallborði um áhrif COVID-19 aðgerðapakka á uppbyggingu innviða og um hvað sé framundan í húsnæðisuppbyggingu.

Hægt verður að fylgjast með þinginu í opnu streymi hér að neðan, en yfirskrift þess er Húsnæði – undirstaða velsældar.

 

 

Þátttakendur í pallborði verða Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sandra Hlíf Ocares, framkvæmdastjóri Byggingarvettvangsins, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Elín Oddný Sigurðardóttir, stjórnarkona í HMS, Hermann Jónasson, forstjóri HMS, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK