Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur ákveðið að lækka vexti og hækka veðhlutfall lána. Síðustu mánuði hafa uppgreiðslur lána hjá lífeyrissjóðum verið talsvert umfram nýjar lánveitingar. Með breytingunni á lánareglum og vaxtakjörum nú vill stjórn Gildis bregðast við þessari þróun og bjóða upp á hagstæðari lán en áður.
Verðtryggðir fastir vextir eru nú á bilinu 3,10% til 3,85%.
Verðtryggðir breytilegir vextir eru nú á bilinu 1,80%-2,55%
Óverðtryggðir breytilegir vextir eru nú á bilinu 3,35%-4,10%.