Opna á ný eftir fjögurra mánaða lokun

Bláa lónið í vetrarbúningi.
Bláa lónið í vetrarbúningi. Ljósmynd/Aðsend

Bláa lónið opnar á ný á morgun, 13 febrúar, eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun. Staðnum var lokað 8. október á síðasta ári vegna hertra aðgerða í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. 

Bláa Lónið, veitingastaðurinn Lava, Silica hótel og verslun Bláa Lónsins í Svartsengi, verða opin allar helgar fram á vor. Retreat Spa mun vera opið á laugardögum. Retreat hótel og veitingastaðurinn Moss opna einnig þó með takmarkaðri opnunartíma.

Þá mun Lava bjóða upp á dögurð laugardaga og sunnudaga í vor. 

Fram kemur í tilkynningu að núgildandi tilmælum yfirvalda varðandi sóttvarnaráðstafanir verði fylgt í hvívetna. 

Vegna takmarkanna eru gestir hvattir til að bóka heimsókn sína í Bláa lónið fyrirfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK