Wise og Netheimur sameinast

Jóhannes H. Guðjónsson, forstjóri Wise, og Ellert K. Stefánsson, annar …
Jóhannes H. Guðjónsson, forstjóri Wise, og Ellert K. Stefánsson, annar eigenda Netheims. Ljósmynd/Aðsend

Hugbúnaðarfyrirtækið Wise og upplýsingatæknifyrirtækið Netheimur verða sameinuð undir merkjum Wise. Starfsmenn sameinaðs fyrirtækis verða 110 talsins.

„Wise mun því með sameiningunni við Netheim geta boðið upp á alhliða þjónustu á sviði upplýsingatækni, allt frá einstökum viðskiptalausnum til hýsingar og alrekstrar upplýsingatækni hjá öllum stærðum fyrirtækja,“ samkvæmt fréttatilkynningu.

Wise skipti um eigendur í upphafi árs 2020 þegar fyrirtæki í eigu Jónasar Hagan keypti meirihluta í  fyrirtækinu. Wise, sem áður hét Maritech, hefur verið í rekstri sem endursöluaðili á Microsoft-hugbúnaði og eigin sérlausnum í 26 ár. Á meðal eitt þúsund viðskiptavina Wise eru sveitarfélög, sjávarútvegs-, fjármála-, framleiðslu- og verslunarfyrirtæki, og fyrirtæki í ýmiss konar sérfræðiþjónustu. 

Netheimur var stofnað árið 1998 og hefur frá upphafi verið í eigu Ellerts Kristjáns Stefánssonar og Guðmundar Inga Hjartarsonar. Netheimur hefur sérhæft sig í hýsingu og rekstri tölvukerfa, en sinnir í raun allri upplýsingatækniþjónustu fyrir fyrirtæki. Stærstu viðskiptavinir Netheims eru í smásölu en fyrirtækið þjónustar einnig heildsölur, lögfræðistofur, tannlæknastofur, verkfræðistofur, útgáfufélög og starfsmannaleigur.  

Við eigendaskipti hjá Wise fyrir um ári tók Jóhannes Helgi Guðjónsson við sem forstjóri fyrirtækisins. Jóhannes hefur starfað í yfir tvo áratugi í upplýsingatækigeiranum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK