Sjá fram á vöxt á næstu 12 mánuðum

Samanlagt hyggjast fyrirtækin sækja um 24 milljarða fjárfestingu á næstu …
Samanlagt hyggjast fyrirtækin sækja um 24 milljarða fjárfestingu á næstu tólf mánuðum. mbl.is/Árni Sæberg

Samsetning útflutningstekna á sviði nýsköpunar, hugvits og tækni hefur gjörbreyst og er ástæða til bjartsýni í geiranum. Fyrirtækin sjá fram á vöxt á næsta árinu. Þetta leiða niðurstöður nýrrar könnunar Íslandsstofu meðal fyrirtækja á þessu sviði í ljós. 

„Þannig hefur vægi útflutningstekna á sviði hugvits og tækni aukist úr 7% í 15%. Þar með hefur fjórða stoð útflutnings í hagkerfinu litið dagsins ljós,“ segir í tilkynningu frá Íslandsstofu um málið. 

Í niðurstöðunum kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Flest fyrirtækin sjá fram á vöxt næstu 12 mánuðina. 
  • Nær öll fyrirtækin hyggjast fjölga starfsmönnum á árinu. 
  • Þrátt fyrir Covid-19 þá stóðust áætlanir meirihluta svarenda. 
  • Almennt hefur viðskiptavinum ekki fækkað. 
  • Örlítill samdráttur var á tekjum á milli áranna 2019 og 2020 en starfsmönnum fjölgaði á sama tíma um 14%. 
  • 67% fyrirtækjanna hafa rekstrarfé miðað við óbreyttan rekstur til næstu tólf mánaða.  
  • Samanlagt hyggjast fyrirtækin sækja um 24 milljarða fjárfestingu á næstu tólf mánuðum. 
  • Fyrirtækin fjölguðu starfsfólki um 14% á síðasta ári. Það er ljóst að sá vöxtur verður mun hraðari ef fyrirtækin ná að sækja sér fyrirhugaða vaxtarfjármögnun. 
  • Ef horft er fimm ár fram í tímann, þá verður fjöldi starfa á þessu sviði kominn í um 3.500 manns miðað við áframhaldandi 14% vöxt á ári.  
  • Ef vöxtur fyrirtækjanna verður 20% á ári verður fjöldi starfa orðinn tæplega 5.000 manns 2026. Í dag starfa um 1.570 manns hjá þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í könnuninni.  
  • Helstu viðskiptavinir fyrirtækjanna eru í Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Þýskalandi og Frakklandi, en það eru þau markaðssvæði sem Íslandsstofa skilgreinir sem lykilmarkaði í sinni útflutningsstefnu. 
  • Aðeins 6% fyrirtækjanna hafa fjármagnað sig í gegnum bankakerfið.  
  • Vaxtarmöguleikar íslenska hagkerfisins eru miklir á þessu sviði. 
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK