Flugmenn endurráðnir og flugfreyjur í fullt starf

Icelandair mun fljúga til 34 áfangastaða í sumar.
Icelandair mun fljúga til 34 áfangastaða í sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Icelandair hyggst bæta við sig tveimur áfangastöðum í sumar og fljúga til alls 34 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Einu sinni í viku verður flogið til Barcelona á Spáni og Portland í Oregon-ríki í Bandaríkjunum.

Þá verður einnig flogið til allra sömu áfangastaða og áður auk þess sem morgunflug til Boston þrisvar í viku bætist við daglegt síðdegisflug. Þá verður byrjað að fljúga til Orlando fyrr en áætlað var, þ.e. í júlí í stað september.

Þetta segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.

Í mars voru 20 flugmenn endurráðnir og í byrjun apríl verða 28 til viðbótar endurráðnir. Þá fara flugfreyjur og flugþjónar, sem hafa verið í hlutastarfi, í fyrra starfshlutfall frá og með 1. maí.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort ráðið verður í fleiri stöðugildi en unnið er að því að uppfæra sumaráætlun.

Áfangastaðirnir í Evrópu eru: Ósló, Barcelona, Bergen, Kaupmannahöfn, Billund, Stokkhólmur, Helsinki, Amsterdam, París, Berlín, Hamborg, Frankfurt, München, Genf, Zürich, Brussel, London, Glasgow, Manchester, Dublin, Madrid, Mílanó og Tenerife.

Áfangastaðirnir í Norður-Ameríku eru: Boston, New York, Seattle, Minneapolis, Washington, Denver, Chicago, Toronto, Vancouver, Montreal og Portland.

Þá mun flugfélagið fljúga reglulega til Alicante í leiguflugi.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK