30.000 pantanir á mánuði

Nýjasta viðbótin er að hægt er að panta sóttan mat …
Nýjasta viðbótin er að hægt er að panta sóttan mat og heimsendingu.

Meira en 30 þúsund veitingahúsabókanir eru gerðar á mánuði í gegnum dineout.is og appið Dineout Iceland. Inga Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Dineout segir að fyrir veirufaraldurinn hafi mánaðarlegar bókanir þegar verið komnar vel yfir þá tölu. Þar á meðal var fjöldi bókana frá ferðamönnum sem hurfu eins og dögg fyrir sólu í upphafi faraldursins. „Við erum búin að sjá gríðarlega aukningu þrátt fyrir veirufaraldurinn,“ segir Inga Tinna en skráðir notendur búnaðarins eru um níu þúsund talsins.

Inga Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Dineout ásamt Arnari Gauta sem hannaði …
Inga Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Dineout ásamt Arnari Gauta sem hannaði nýtt skrifstofurými fyrirtækisins í Skútuvogi.

Nýjasta viðbótin er að hægt er að panta sóttan mat og heimsendingu. „Við erum komin með markaðsráðandi stöðu í borðabókunum með 120 veitingastaði í viðskiptum. Í faraldrinum hefur verið mikill uppgangur í heimsendingum og því bættum við því í kerfið.“

Ísland prufumarkaður

Útrás er í kortunum hjá Dineout. „Við horfum á Ísland sem prufumarkað og erum komin af stað á Spáni. Það er ofsalega spennandi tækifæri. Við horfum til fleiri landa einnig, þótt verkefnið sé aðeins í dvala akkúrat núna vegna veirunnar. Búnaðurinn er í það minnsta fullbúinn til útflutnings.“

Varðandi fjármögnun fyrirtækisins segir Inga Tinna að stofnendur hafi lagt því til fé en annars hafi tekjur staðið undir rekstrinum. Veltan í fyrra nam 24 milljónum króna og útlit er fyrir vöxt á þessu ári. „Við höfum verið í viðræðum við nokkra aðila varðandi fjármögnun.“

Sex starfa hjá Dineout. Eigendur eru auk Ingu Tinnu þau Viktor Blöndal Pálsson og Magnús Björn Sigurðsson auk Sindra Más Finnbogasonar, eiganda Tix.is.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK