75 ný einbýli í landi Húsafells

Úr byggðinni er mikið útsýni en um leið tryggt að …
Úr byggðinni er mikið útsýni en um leið tryggt að hún falli sjálf inn ílandslagið. Húsin eru í þrenns konar útfærslum, m.a. á tveimur hæðum. Tölvuteikning/Onno

Húsafellsbændur hafa látið skipuleggja nýja byggð ofan við núverandi sumarhúsabyggð sem rúma mun allt að 75 heilsárshús. Framkvæmdir eru nú þegar hafnar við fyrstu sex húsin á svæðinu og í fyrsta áfanga er stefnt að uppbyggingu á 40 lóðum.

Unnar Bergþórsson, sem vinnur að verkefninu ásamt föður sínum, Bergþóri Kristleifssyni, segir að í núverandi ástandi sé mikil spurn eftir afdrepi utan höfuðborgarsvæðisins þar sem fólk geti verið meira út af fyrir sig.

Ein húsategundin sem boðið er upp á í Húsafellslandinu er …
Ein húsategundin sem boðið er upp á í Húsafellslandinu er tveggja hæða og í því húsi er bæði heitur pottur og gufubað. Tölvuteikning/Onno

„Við fundum fyrir mikilli eftirspurn í þessum aðstæðum og þótt hverfið hafi verið í 15 ár í undirbúningi þá teljum við þetta réttan tímapunkt til að koma með þetta á markað. Viðtökurnar láta heldur ekki á sér standa og sex lóðir eru seldar og fleiri fráteknar. Þá er smíði hafin á tveimur húsum til viðbótar.“

Kaupendur geta valið milli þriggja tegunda vistvænna húsa sem eru frá 88 fermetrum og upp í 140 fermetra, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK