Edda ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Byko

Edda Blumenstein, nýr framkvæmdastjóri framþróunar verslunar og viðskiptavina hjá Byko.
Edda Blumenstein, nýr framkvæmdastjóri framþróunar verslunar og viðskiptavina hjá Byko. Ljósmynd/Aðsend

Edda Blumenstein hefur verið ráðin framkvæmdastjóri framþróunar verslunar og viðskiptavina hjá Byko, en um er að ræða nýtt svið hjá fyrirtækinu þar sem lögð er áhersla á heildarupplifun viðskiptavina, að nýta stafræn tækifæri og vinna að langtímavexti á markaði.

Edda er doktor frá Leeds University Business School í Omnichannel Retail Transformation, með meistaragráðu frá Leeds University Design School og B.Sc-gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá HR.

Edda stofnaði ráðgjafafyrirtækið beOmni sem hefur aðstoðað íslensk verslunarfyrirtæki í Omnichannel-stefnumótun og hefur einnig stýrt Rannsóknarsetri verslunarinnar síðustu mánuði. Edda hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um heildarupplifun viðskiptavina í verslun og skrifað kennsluefni fyrir alþjóðlegt veffræðslufyrirtæki. Hún var áður framkvæmdastjóri Smáratívolís, deildarstjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Icepharma og vörumerkjastjóri Coca-Cola Íslandi.

Edda er einnig stjórnarformaður stafræns faghóps innan Samtaka verslunar og þjónustu. Edda er gift Árna Inga Pjeturssyni, framkvæmdastjóra Nike Team í Bretlandi, og eiga þau fjögur börn á aldrinum 4 til 19 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK