Seðlabankastjóri valinn hagfræðingur ársins 

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ásgeir Jónsson hefur verið valinn hagfræðingur ársins 2021 en það er Félag viðskipta- og hagfræðinga sem veitir verðlaunin.

Verðlaunin verða afhent á Þekkingardaginn 2021 þann 13. apríl en þau hafa verið veitt í 21 ár samkvæmt fréttatilkynningu.

Ásgeir Jónsson var skipaður seðlabankastjóri árið 2019. Hann lauk meistaraprófi í hagfræði frá Indiana-háskóla í Bandaríkjunum árið 1997 og doktorsprófi árið 2001 frá sama skóla með alþjóðafjármál, peningamálahagfræði og hagsögu sem aðalsvið. Í doktorsritgerð sinni fjallaði Ásgeir um peningastefnu í litlum opnum hagkerfum.

Ásgeir hefur starfaði við hagfræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2004, fyrst sem lektor og síðan dósent. Hann var deildarforseti við hagfræðideild frá árinu 2015 til 2019. Ásgeir var aðalhagfræðingur og forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings og síðar Arion banka 2004-2011 og síðar efnahagsráðgjafi Virðingar og GAMMA. Hann hefur gegnt öðrum ábyrgðarstörfum, meðal annars sem formaður starfshóps um endurskoðun peningastefnu og formaður yfirfasteignamatsnefndar. Hann er einnig höfundur margra bóka og greina um hagfræði og söguleg efni.

„Á liðnu ári hefur mætt mikið á Ásgeiri og Seðlabanka Íslands sem hefur leikið lykilhlutverk í viðbrögðum og viðspyrnu efnahagslífsins í heimsfaraldri Covid-19. Snör viðbrögð Seðlabankans meðal annars með lækkun stýrivaxta, afnámi sveiflujöfnunarauka, sölu á gjaldeyrisvaraforða til að vinna gegn gengissveiflum og verðbólgu á fordæmalausum tímum skiptu sköpum í baráttunni við efnahagslegu afleiðingar veirunnar. Það er mat dómnefndar að Ásgeir hafi í starfi sínu sem seðlabankastjóri sýnt mikla stillingu og beitt viðeigandi aðgerðum á krefjandi tímum. Félagi viðskipta- og hagfræðinga er mikil ánægja að verðlauna Ásgeir fyrir hans frábæru störf,“ segir í mati dómnefndar samkvæmt fréttatilkynningu.

Í dómnefnd sátu Telma Eir Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri FVH ásamt stjórn FVH en hana skipa Lilja Gylfadóttir formaður, Lára Hrafnsdóttir varaformaður, Brynja Jónbjarnardóttir, Hálfdán Steinþórsson, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Tryggvi Másson og Þórarinn Hjálmarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK