Hagar selja Útilíf

Hluti starfsfólks Útilífs en alls starfa 40 manns hjá fyrirtækinu. …
Hluti starfsfólks Útilífs en alls starfa 40 manns hjá fyrirtækinu. Hörður Magnússon er framkvæmdastjóri og verður það áfram. Ljósmynd/Aðsend

Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson hafa í sameiningu keypt Útilíf af Högum. Eftir kaupin er Íslensk fjárfesting 60% hluthafi en J.S. Gunnarsson heldur á 40% hlut í félaginu. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Íslensk fjárfesting er fjárfestingarfélag í eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar. Fjárfestingar félagsins hafa einkum verið á sviði ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og fasteignaþróunar. J.S. Gunnarsson er innflutningsfyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á útivistar-, sport- og skófatnaði. Helstu vörumerki fyrirtækisins í dag eru Didriksons, Viking, Kombi, Arena, Sixmix, Tamaris ásamt fleirum. Fyrirtækið er í eigu Heiðu Gunnarsdóttur, Jóhanns Inga Gunnarssonar og Steindórs Gunnarssonar.

Hörður Magnússon hefur verið framkvæmdastjóri Útilífs undanfarin ár og mun halda áfram sem framkvæmdastjóri með nýjum eigendum í þeirri vegferð sem fram undan er, samkvæmt fréttatilkynningu.

Hörður segist spenntur fyrir næsta kafla í sögu Útilífs: „Smásölumarkaðurinn er á fleygiferð um þessar mundir. Það eru í gangi miklar breytingar á lífsstíl og áhugamálum þjóðarinnar og síauknar kröfur eru gerðar um vandaða vöru og rétta persónulega þjónustu á sama tíma og hinn stafræni heimur er að bylta samskiptum við viðskiptavinina. Framtíðin hefur aldrei verið jafn spennandi og full af tækifærum. Stjórnendur og nýir eigendur hafa metnað og vilja til að grípa þessi tækifæri tveim höndum,“ er haft eftir Herði í tilkynningu.

„Með sölunni á Útilífi erum við að einfalda rekstur Haga og einbeita okkur í ríkari mæli að skilgreindri kjarnastarfsemi, á dagvöru- og eldsneytismarkaði. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með kaupin og velfarnaðar í rekstri Útilífs. Einnig þökkum við starfsfólki Útilífs fyrir frábært samstarf á liðnum árum og óskum þeim góðs gengis í nýrri sókn,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, í tilkynningu.

„Markmið nýrra eigenda er að byggja á góðum grunni Útilífs sem útivistar- og íþróttaverslun en leggja á sama tíma áherslu á sókn í útivistarvörum bæði í verslunum Útilífs og í gegnum vefverslun. Viðskiptavinir Útilífs er stór og breiður hópur og er markmið okkar að skapa fyrirtækinu meiri sýnileika og að sækja fram í sérfræðiþjónustu við útivistar- og skíðafólk. Þarna sjáum við mörg tækifæri til að styðja enn betur við sölu á þekktum vörumerkjum Útilífs með sókn í þjónustu og sölu fyrir allt útivistarfólk,“ segir Einar Þór Steindórsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Íslenskri fjárfestingu, í tilkynningu.

Útilíf var stofnað árið 1974 og hefur allt frá stofnun sérhæft sig í að þjónusta útivistar- og íþróttafólk. Hjá Útilífi starfa um 40 manns. Útilíf rekur tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu, í Kringlunni og í Smáralind auk vefverslunar og hefur um árabil verið umboðsaðili vörumerkja eins og The North Face, Rossignol, Nordica, Leki, Meindl, Deuter og Blizzard. Útilíf er einnig söluaðili fyrir Nike, Adidas, Speedo, Under Armour, Arena og Didriksons svo dæmi séu nefnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK