Blaðamannafélagið færir út kvíarnar

Nýtt húsnæði Blaðamannafélags Íslands.
Nýtt húsnæði Blaðamannafélags Íslands. Af vef Blaðamannafélags Íslands

Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt að kaupa húsnæði í Ármúla 22 og er með kaupunum ætlunin að tryggja sjálfstætt starfandi blaðamönnum húsnæði. 

Fjallað er um kaupin á vef Blaðamannafélags Íslands. 

„Húsnæðið er um 140 fermetrar að stærð, sem er svipað og fundarsalur félagsins við Síðumúla. Gengið var frá kaupunum í desember og hefur afsal verið gefið út og Blaðamannafélagið hirt arð af fjárfestingunni frá 1. febrúar síðastliðnum. Kaupverð húsnæðisins var 36,5 milljónir króna, sem er um 85% af fasteignamati. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé félagssjóðs án nokkurrar lántöku. Við kaupin yfirtók félagið langtímaleigusamning um húsnæðið, sem er uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara af beggja hálfu. Miðað við núverandi forsendur greiðir fjárfestingin sig upp á innan við 20 árum.

Tvennt var það einkum sem réði ákvörðun stjórnar félagsins um að ráðast í þessa fjárfestingu. Annars vegar að tryggja sér húsnæði undir aðstöðu fyrir félagsmenn í grennd við höfuðstöðvar félagsins sé það álitið fýsilegt og nauðsynlegt í náinni framtíð. Tæknin hefur gjörbylt starfsumhverfi hefðbundinna fjölmiðla á undanförnum 30 árum og nýjar áskoranir litið dagsins ljós nánast frá ári til árs, svo ör hefur þróunin verið. Sjálfstætt starfandi blaðamönnum hefur fjölgað og fastar starfsstöðvar skipta minna máli en áður, sem gæti gert það fýsilegt og fjárhagslega hagkvæmt að skapa aðstöðu fyrir þennan stækkandi hóp félaga í BÍ. Undir þá framtíðarsýn þarf félag eins og Blaðamannafélag Íslands að vera búið og eru kaup félagsins á ofangreindu húsnæði þáttur í þeim undirbúningi.

Að hinu leytinu er Blaðamannafélagið nokkuð stöndugt félag, sem ávaxtað hefur fé sitt vel á undanförnum árum og á fé í sjóðum. Það leggur stjórn félagsins þá skyldu á herðar að ávaxta það fé eins vel og kostur er með sem allra minnstri áhættu. Félagið tapaði ekki fjármunum á hruninu 2008, öfugt við flesta aðra, sem áttu fé í hrundum bönkum landsins. Á þeim tíma voru vextir háir og ávöxtun á eigin fé félagsins góð. Því er öfugt farið nú þegar innlánsvextir nálgast núllið og ábyrgðarhluti að bregðast ekki við þegar tækifærin bjóðast. Þar til viðbótar hefur fjárfesting í steinsteypu ávallt verið góður kostur á Íslandi og ekki ólíklegt að fasteignaverð í Múlunum eigi eftir að hækka umfram verðlag á næstu árum.

Þar til viðbótar eru Múlarnir spennandi kostur í nágrenni miðborgarinnar. Meðal annars vegna bílastæðavandræða þar og hás leiguverðs hefur spurn eftir skrifstofuhúsnæði í Múlunum aukist og verð hækkað. Áætlanir um borgarlínu ýta þar undir, en gert er ráð fyrir að hún komi meðfram Suðurlandsbraut sem styttir ferðatíma í allar áttir. Auk þess eru Múlarnir hverfi sem er í þróun, verið að deiliskipuleggja það að nýju, og gert ráð fyrir mikilli fjölgun íbúða á svæðinu. Nálægðin við skrifstofu og fundarsali félagsins í Síðumúla er líka kostur, en tæpur fimm mínútna gangur er á milli Síðumúlans og Ármúlans,“ segir í tilkynningu á vef Blaðamannafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK