Kristín Soffía ráðin framkvæmdastjóri Icelandic Startups

Kristín Soffía Jónsdóttir.
Kristín Soffía Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní.

Kristín Soffía hefur verið borgarfulltrúi í Reykjavík frá árinu 2014, stjórnarformaður Faxaflóahafna frá árinu 2014 og var varaborgarfulltrúi á árunum 2010-2014. Hún er með BS próf í umhverfisverkfræði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Icelandic Startups er í eigu Origo, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Allir þessir aðilar leggja mikið af mörkum í að efla nýsköpun á Íslandi.

Nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari en í dag. Öflugt nýsköpunarstarf mun skapa störf, leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í umhverfismálum og bæta lífsgæði hér á landi. Ég er þakklát fyrir að fá að leiða félagið á þessum spennandi tímum og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum til að styðja enn frekar við nýsköpun hér á landi,“ er haft eftir Kristínu Soffíu.

Icelandic Startups veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi stuðning, en félagið stendur meðal annars að viðskiptahraðlinum Startup Supernova sem er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki. Þá skipuleggur Icelandic Startups nýsköpunarverkefnin Gulleggið, Til sjávar og sveita, Startup orkidea, Snjallræði, Hringiðu og Firestarter.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK