Sigríður ráðin fjármálastjóri Sorpu

Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir.
Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Sorpu bs. Sigríður hefur áður starfað hjá Icelandair, sem fjármálastjóri hjá Inkasso og Netgíró og við endurskoðun hjá EY.

Sigríður Katrín hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviði fjármálastýringar og mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun Sorpu sem nú er í miklu umbreytingarferli, að því er segir í tilkynningu.

„Sigríður Katrín er mikilvæg viðbót við stjórnendateymi Sorpu. Miklar áskoranir felast í því að hætta að urða úrgang á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi fyrir lok árs 2023 og kallar á auka áherslu á bætta meðhöndlun alls úrgangs. Þessu fylgja verulegar breytingar á tekjum og gjöldum Sorpu sem krefjast styrkrar fjármálastjórnar á öllum sviðum,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, í tilkynningunni.

Sigríður Katrín er löggiltur endurskoðandi með MSc-gráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur þegar hafið störf hjá Sorpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK