Daníel Þór Magnússon, sjóðstjóri hjá Gamma, segir búið að leigja út þrjú atvinnurými á jarðhæð Hverfisgötu 94-96 í Reykjavík.
Byggingarnar snúa að Hverfisgötu í norðri og Barónsstíg í austri.
Fram hefur komið að Góði hirðirinn hefur leigt út miðrýmið á Hverfisgötu. Nordic Store hefur leigt út rýmið vestan við miðrýmið.
Bjarni Jónsson á Nordic Store-keðjuna ásamt Hafsteini Guðbjartssyni en hún er með nokkrar verslanir í miðborginni. Meðal þeirra eru stórar verslanir í Lækjargötu 2, Laugavegi 4-6, Laugavegi 18 og Laugavegi 95-99.
Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.