Almar ráðinn fagsviðsstjóri

Almar Barja.
Almar Barja. Ljósmynd/Aðsend

Almar Barja hefur verið ráðinn fagsviðsstjóri hjá Samorku. Almar útskrifaðist með M.Sc. í sjálfbærum orkufræðum frá Iceland School of Energy árið 2015 og er einnig með B.Sc. í jarðfræði frá Háskóla Íslands.

Undanfarin fimm ár hefur Almar unnið sem hagfræðiráðgjafi hjá bresku ráðgjafastofunni Economic Consulting Associates. Þar vann hann með alþjóðastofnunum eins og World Bank, EBRD og fjölda ríkisstjórna að verkefnum tengdum orku- og veitumálum.

Almar hefur þegar hafið störf, að því er segir í tilkynningu frá Samorku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK