Þóra Eggerts ráðin til framkvæmdastjórnar Play

Þóra Eggertsdóttir.
Þóra Eggertsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Þóra Eggertsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs flugfélagsins PLAY. Þetta kemur fram í tilkynningu. Í starfi sínu mun Þóra bera ábyrgð á að byggja upp fjármálasvið félagsins sem og að leiða skráningu PLAY á Nasdaq First North Iceland markaðinn. Þóra kemur frá Icelandair og tekur til starfa á næstu dögum.

Þóra hefur víðtæka alþjóðlega reynslu og hefur starfað og stundað nám í London, Barcelona og Tokyo. Hún hefur 17 ára reynslu af störfum tengdum fjármálum, rekstri og stjórnun. Nú síðast starfaði Þóra sem forstöðumaður innanlandsflugs hjá Icelandair, en áður var hún fjármálastjóri og forstöðumaður upplýsingatækni og stafrænnar þróunar hjá Air Iceland Connect. Þóra var forstöðumaður áhættu- og fjárstýringar hjá Landsneti á árunum 2012 – 2017 og vann einnig við fjárstýringu hjá Landic Property. Áður starfaði Þóra um nokkurra ára skeið hjá Morgan Stanley í Tokyo.

„Flugrekstur er einstaklega heillandi. Ég hef mikla trú á þeirri hugmyndafræði sem eigendur og forstjóri PLAY hafa sett fram og hlakka til þess að taka þátt í framtíðaruppbyggingu félagsins. Ferðaþjónusta er öflug og ég er sannfærð um að hún muni blómstri á ný eftir þessa krefjandi tíma,“ er haft eftir Þóru í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, sé gríðarlega ánægður með að fá Þóru inn í stjórnunarteymið.

„Það er sannarlega mikill fengur fyrir Play að fá Þóru til starfa. Hún hefur öflugan alþjóðlegan bakgrunn í fjármálum og rekstri og þekkir auk þess vel til flugreksturs. Play mun vaxa hratt á næstunni og þá skiptir lykilmáli að teymið sem stýrir félaginu sé samhent og öflugt. Þóra mun einnig leika stórt hlutverk hjá okkur í tengslum við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað nú á næstunni og ég veit að hún mun smellpassa inn í þann öfluga hóp starfsmanna sem nú þegar er að störfum hjá PLAY,“ er haft eftir Birgi. 

Þóra er viðskiptafræðingur með löggildingu í verðbréfaviðskiptum. Hún er með mastersgráðu í markaðsfræðum frá viðskiptaháskólanum EADA í Baracelona og MBA frá HR. Þóra er gift Bjarna Erni Kærnested, forstöðumanni hjá Össuri og eiga þau tvö börn. Þóra hefur alla tíð haft mikinn áhuga á íþróttum og keppti m.a. í golfi á yngri árum. Hún hefur einnig gaman af fjallgöngu, skíðum, badminton og ferðalögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK