Matarkörfur landsmanna stækkuðu um 20 prósent

Samkvæmt ársuppgjöri Haga stækkuðu matakörfur viðskiptavina þeirra um ríflega 20 …
Samkvæmt ársuppgjöri Haga stækkuðu matakörfur viðskiptavina þeirra um ríflega 20 prósent. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ársuppgjör Haga var birt í gær en meðal þess sem kom fram var sú frétt að meðalkarfa hvers viðskiptavinar matvöruverslana þeirra hafi stækkað um ríflega 20 prósent. Þrátt fyrir að heimsóknum viðskiptavina hafi fækkað á árinu sem leið vó fjöldi seldra vara á móti þessari þróun og meira til.

Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir í samtali við mbl.is að það sem er þarna á bak við er skýr viðbrögð við aðstæðum á árinu, þar á meðal Covid-19.

„Fólk er að breyta sinni neysluhegðun og hvernig það nálgast aðföng til heimilisins og í einhverjum skilningi fækka ferðum í búðir.

„Að sama skapi erum við að kaupa meira í hverri ferð þannig að það skilur sér þá í þessari stækkun á körfu. Þetta eru mjög skynsamleg og eðlileg viðbrögð í aðstæðunum sem við búum við núna.“

Munum ekki fara á sama stað

Aðspurður um hvort að þessi viðbrögð muni gang aftur eftir lok faraldursins telur hann að liklegt sé að það verðið varanlegar breytingar á hegðun viðskiptavina í framhaldi af faraldrinum.

Það er ósennilegt að allt muni fara í sama farið og áður, því við erum búin að venja okkur við ákveðna hegðun eða vinnulag sem virkar ágætlega í rúmt ár og því verður ekki snúið við í einni svipan. Það á sérstaklega við ef við gerum ráð fyrir  að fólk sé að nýta tíma sinn betur svona.“     

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK