Rúmlega tvöföld eftirspurn í útboðinu

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Almennu hlutafjárútboði Síldarvinnslunnar lauk klukkan 16 í gær og þykir hafa heppnast vel. Í útboðinu voru boðnir til sölu 447,6 milljónir hluta af áður útgefnum hlutum. Rúmlega tvöföld eftirspurn var frá bæði almenningi og fagfjárfestum og nýttu seljendur sér heimild til að fjölga seldum hlutum í útboðinu um 51 milljón hluta.

Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Útgefið hlutafé í Síldarvinnslunni nemur 1.700 milljónum hluta. Seljendur samþykktu áskriftir fyrir 498,6 milljónir hluta eða 29,3% af hlutafé félagsins.

Áskriftir undir milljón ekki skertar

Nær 6.500 áskriftir bárust, fyrir um 60 milljarða króna. Í tilboðsbók A var endanlegt útboðsgengi 58 krónur á hlut og verða áskriftir í bókinni ekki skertar undir einni milljón króna að kaupverði. Skerðing áskrifta á útboðsgengi í tilboðsbók A er að öðru leyti hlutfallsleg, að því er fram kemur á vef félagsins.

Í tilboðsbók B reyndist endanlegt útboðsgengi 60 krónur á hlut.

„Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu ekki úthlutað. Söluandvirði nam 29,7 milljörðum króna,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.

Gjalddagi og eindagi áskriftarloforða í útboðinu er 20. maí 2021 og er áætlað að afhenda kaupendum hluti í Síldarvinnslunni 26. maí 2021 að undangenginni greiðslu.

Ánægjulegt að sjá áhuga almennings

Áætlað er að viðskipti með hlutabréf í Síldarvinnslunni hefjist 27. maí 2021 en Nasdaq Iceland mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með hlutabréfin með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Haft er eftir Gunnþóri Ingvasyni, forstjóra Síldarvinnslunnar, að virkilega ánægjulegt sé að sjá áhuga almennings og fagfjárfesta á sjávarútvegi, sem kristallist í niðurstöðum útboðsins.

„Ég vil bjóða nýja hluthafa velkomna í Síldarvinnsluna og þakka það mikla traust sem þeir hafa sýnt félaginu og starfsfólki þess. Með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll verður Síldarvinnslan með þá sérstöðu að vera eina skráða félagið með höfuðstöðvar á landsbyggðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK