Leiðrétta mistök og afhjúpa mikla hækkun

Þjóðskrá er til húsa í Borgartúni.
Þjóðskrá er til húsa í Borgartúni. Ljósmynd/Aðsend

Þjóðskrá hefur birt leiðrétta vísitölu íbúðaverðs fyrir mars 2021 en við yfirferð kom í ljós villa í tölum sem birtar voru 20. apríl síðastliðinn. Biðst Þjóðskrá velvirðingar á mistökunum í tilkynningu.

Greint hafði verið frá því að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefði hækkað um 1,6% í marsmánuði en raunin er sú að hækkunin er mun meiri eða 3,3% milli mánaða.

Vísitalan hefur ekki hækkað meira á milli mánaða frá maí 2007. Þá hækkaði hún úr 324 í 335,7 á milli mánaða. Nú hækkaði hún úr 688,9 í 711,7 á milli mánaða.

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 3,3% í mars en áður var …
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 3,3% í mars en áður var því haldið fram að hún hefði hækkað um 1,6%. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ætlað að varpa ljósi á þróunina

Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,0%, síðatliðna 6 mánuði var hækkunin 6,5% og síðustu 12 mánuði hækkaði hún um 10,7%.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis og er niðurstaðan vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK