SAS flýgur til Íslands 14. júní

SAS hefur beint flug til Íslands á ný frá kaupmannahöfn …
SAS hefur beint flug til Íslands á ný frá kaupmannahöfn 14. júní AFP

Scandinavian airlines (SAS) fjölga nú ferðum í takt við aukna eftirspurn. Flogið verður beint til 12 áfangastaða á ný frá Kaupmannahöfn. Er Ísland þar á meðal en flug hingað mun hefjast 14. júní. 

SAS hefur lagt áherslu á að hefja flug til vinsælla ferðamannastaða og staða sem fjöldi Dana hefur tengsl við eða búsetu. Þetta kemur fram á vef dfly.no.

Í ljósi þess að bólusetningum vegna Covid miðar hratt áfram og smitum fækkar samhliða því eru sífellt fleiri lönd sem opna fyrir landamæri sín og bjóða ferðamenn velkomna í sumar. Þessi lönd eru flest farin að slaka á innlendum takmörkunum en þó með mismunandi hætti. Þar að auki krefjast þau ýmissa ólíkra vottorða til staðfestingar á því að ferðamaðurinn búi yfir mótefni. 

Aukinn sveigjanleiki

Til þess að létta undir með ferðamönnum býður SAS nú upp á rafræna þjónustu undir nafninu „SAS Travel Ready Center“. Með henni geta ferðamenn nálgast upplýsingar um hvers kyns takmarkanir eru í gildi á fyrirhuguðum áfangastað sínum og hvers kyns vottorða er krafist þar.

Farþegum SAS er einnig bent á að nýta sér þjónustu SAS Travel Ready til að forðast öngþveiti flughafnanna með því að innrita sig heima og hlaða upp gögnum og viðeigandi vottorðum fyrirfram sem hljóta þá staðfestingu rafrænt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK