Stefna á skráningu Íslandsbanka

Íslandsbanki.
Íslandsbanki. mbl.is/Árni Sæberg

Banka­sýsla rík­is­ins og Íslandsbanki áforma hluta­fjárút­boð og skrán­ingu á Nas­daq Ice­land að því er fram kemur á vef Íslandsbanka. Útboðið mun ná til að lágmarki 25% af útgefnu og útistandandi hlutafé bankans. 

Fyrirhugað útboð mun ná til þegar útgefinna hluta í Íslandsbanka. Útboðið og tímasetning þess er m.a. háð markaðsaðstæðum. Að öllu óbreyttu gæti útboðið farið fram á öðrum ársfjórðungi 2021 að því er segir í tilkynningu.

Útboðið fer fram annars vegar með almennu útboði á hlutabréfum til fagfjárfesta og almennra fjárfesta á Íslandi og lokuðu útboði til tiltekinna fagfjárfesta í ýmsum öðrum lögsögum. Stjórn bankans mun óska eftir því að allt hlutafé bankans verði tekið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland. 

Bankasýsla ríkisins, sem fer með hlut ríkissjóðs í Íslandsbanka, skuldbindur sig til að selja ekki frekari hlut í bankanum í 180 daga eftir fyrsta viðskiptadag hlutabréfanna á Nasdaq Iceland með fyrirvara um ákveðnar undantekningar, sem eru í samræmi við viðteknar venjur á markaði.

Citigroup Global Markets Europe AG, Íslandsbanki hf. og J.P. Morgan AG hafa sameiginlega umsjón með útboðinu og eru leiðandi söluráðgjafar ásamt Barclays Bank Ireland PLC, HSBC Continental Europe, Fossum mörkuðum hf. og Landsbankanum hf. Arion banki hf. og Kvika banki hf. ásamt Arctica Finance hf., Íslenskum fjárfestum hf. og Íslenskum verðbréfum hf. munu einnig hafa aðkomu að útboðinu sem söluráðgjafar.

Segir skráningu mikilvægt skref

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í tilkynningu: „Skráning Íslandsbanka á markað er mikilvægt skref í þá átt að draga úr umtalsverðu eignarhaldi íslenska ríkisins á fjármálamarkaði og mun veita ríkinu skýrt fordæmi í þá átt að selja það sem eftir stendur af eignarhlut í bankanum. Með þessum áfanga færumst við nær heilbrigðara umhverfi á fjármálamarkaði, eins og sjá má hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndum. Það er ánægjulegt að sjá að sölumeðferðin, sem stýrt er af Bankasýslu ríkisins og ráðgjöfum hennar, gengur vel og hlakka ég til að ljúka henni með góðum árangri.“

Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins ánægður

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, segir í tilkynningu: „Til samræmis við ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra í janúar sl. og umsagnir efnahags- og viðskiptanefndar og fjárlaganefndar Alþingis, er ég ánægður að sjá að áætlanir um almennt útboð Íslandsbanka eru að verða að veruleika. Ráðherra fól Bankasýslu ríkisins ábyrgð og umsjón með söluferlinu og að tryggja ákveðna skilmála útboðs- og úthlutunarreglna. Í eigandastefnu ríkisins kemur fram að markmiðið sé að selja eignarhlut í Íslandsbanka þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru til staðar og það er mat okkar að þau séu nú fyrir hendi.“

Grunnur lagður að dreifðu eignarhaldi

Hallgrímur Snorrason, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir í tilkynningu: „Þetta eru tímamót í sögu Íslandsbanka nú þegar við leggjum grunn að dreifðu og almennu eignarhaldi bankans, líkt og verið hefur lengst af í sögu hans. Frá því bankinn var endurreistur árið 2008 hefur hann starfað með þeim hætti sem skráð fyrirtæki gera. Innviðir bankans eru því vel þróaðir og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til skráðra fyrirtækja. Við erum ánægð að bjóða fjárfestum að taka þátt í áframhaldandi vegferð bankans og teljum að skráning á markað sé staðfesting á styrk hans og um leið íslenska bankakerfisins og íslenska hagkerfisins í heild sinni.“

Íslandsbanki er að fullu í eigu íslenska ríkisins en Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í bankanum. Bankasýsla ríkisins lagði fram tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra í desember 2020 um að hefja sölumeðferð á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK