Færa stórfyrirtækin inn í nútímann

Atli Þorbjörnsson stofnaði Gangverk árið 2010. Þar starfa nú 70 …
Atli Þorbjörnsson stofnaði Gangverk árið 2010. Þar starfa nú 70 manns. Kristinn Magnússon

Íslenska hugbúnaðarhúsið Gangverk hefur á síðustu árum sinnt risaverkefnum fyrir fyrirtæki á borð við fjömiðlasamsteypuna CBS í Bandaríkjunum, Sotheby's, sem er stærsta uppboðshús heims, og nú síðast lúxusferðaskrifstofuna Lindblad. Flest stefnir í að stór viðskiptavinur vestanhafs bætist í hópinn á komandi vikum. Mitt í viðskiptamannahópi Gangverks er svo Kvika banki sem leggur nú mikla áherslu á fjártæknilausnir framtíðarinnar.

Hluti af starfsmannahópi Gangverks.
Hluti af starfsmannahópi Gangverks. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Með yfir 70 starfsmenn

Atli Þorbjörnsson stofnaði fyrirtækið árið 2010 og fer nú fyrir hópi ríflega 70 sérfræðinga sem allir starfa hér á landi. Verkefnið felist ekki síst í að koma rótgrónum og öflugum fyrirtækjum inn í 21. öldina og tengja þau betur við viðskiptavini. Árangurinn láti ekki á sér standa, m.a. hjá Sotheby's-uppboðshúsinu.

„Frá því við komum til samstarfs við uppboðshúsið árið 2016 hefur meðalaldur viðskiptamannahópsins lækkað um hartnær áratug,“ segir Atli. Margt hafi verið gert rétt í að laða starfsemi á borð við þá sem Gangverk sinnir til landsins. Alþjóðleg samkeppni sé hörð og enn þurfi að bæta umhverfið.

„Mér finnst óneitanlega sérstakt þegar atvinnuástandið er eins og það er, atvinnuleysi í sögulegu hámarki, að þá þekki maður mýmörg dæmi þess að óþarflega flókið og íþyngjandi regluverk og hæg stjórnsýsla sé að hamla stórum atvinnuskapandi verkefnum hér á landi,“ segir Atli.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK