N1 kaupir 20 hraðhleðslustöðvar

Frá vinstri: Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, Magnús Júlíusson, forstöðumaður …
Frá vinstri: Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, Magnús Júlíusson, forstöðumaður Orkusviðs N1, Hinrik Örn Bjarnason framkvæmdastjóri N1, Berglind Bergþórsdóttir, mannauðsstjóri Öskju og Jónas Kári Eiríksson, forstöðumaður vörustýringar. Ljósmynd/Aðsend

N1 hefur skrifað undir samning við Öskju um kaup á 20 hraðhleðslustöðvum. Þær eru allt að 400 kw og eru því öflugustu hraðhleðslustöðvar landsins.

Með kaupunum fjölgar hraðhleðslustöðvum N1 á lykilstaðsetningum um þjóðvegi landsins á næstu mánuðum, að því er segir í tilkynningu.

„Við ætlum okkur að halda áfram á þeirri vegferð að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi og halda áfram að veita viðskiptavinum okkur besta mögulegu þjónustu. Við höfum metnaðarfull markmið sem krefjast mikilla fjárfestinga en þéttum með þessu net hraðhleðslustöðva verulega, viðskiptavinum okkar til hagsbóta,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í tilkynningunni.

Fljótlega verður hafist handa við að setja upp 400kW hraðhleðslustöðvar í Staðarskála, en þar verða allt að 6 stöðvar settar upp í sumar. Í kjölfarið bætast við tvær stöðvar til viðbótar við þær tvær sem nú þegar eru í Borgarnesi og að því loknu verður hafist handa við uppsetningu á Suðurlandi.

Við bætast hraðhleðslustöðvar á þjónustustöðum N1 í Vík og á Egilsstöðum, en nú þegar eru stöðvar í Lindum í Kópavogi, Mosfellsbæ, Borgarnesi, Blönduósi, Staðarskála, Hvolsvelli og á Akureyri.

„Það er okkur ánægja að N1 hafi valið að ganga til samstarfs við Öskju í þessu metnaðarfulla verkefni en hleðslustöðvarnar frá Innogy eru áreiðanlegar og hafa reynst mjög vel víðsvegar um heiminn. Við fögnum aukinni þjónustu við rafbílaeigendur um allt land og óskum N1 til hamingju með áfangann,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK