Eva og Hafdís til Góðra samskipta

Eva Ingólfsdóttir og Hafdís Rós Jóhannesdóttir voru nýlega ráðnar sem …
Eva Ingólfsdóttir og Hafdís Rós Jóhannesdóttir voru nýlega ráðnar sem ráðgjafar hjá Góðum samskiptum. Ljósmynd/Góð samskipti

Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti hefur ráðið tvo nýja ráðgjafa, þær Evu Ingólfsdóttur og Hafdísi Rós Jóhannesdóttur.

Eva er leitarsérfræðingur og ráðgjafi í ráðningardeild Góðra samskipta. Eva er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og mun í haust útskrifast með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Hafdís Rós er ráðgjafi í almannatengslum. Hún hefur starfað í hlutastarfi hjá Góðum samskiptum meðfram námi frá árinu 2017 en var nýlega ráðin í fullt starf. Hafdís er með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla frá Háskólanum á Bifröst. 

Góð samskipti voru stofnuð árið 2008 sem almannatengslafyrirtæki en fóru fljótlega að bjóða víðtækari ráðgjöf til stjórnenda. Fyrirtækið víkkaði verulega út starfsemi sína vorið 2020 og starfar nú á fjórum meginsviðum: Almannatengslum, ráðningum, stefnumarkandi ráðgjöf og þjálfun stjórnenda. Framkvæmdastjóri og stofnandi Góðra samskipta er Andrés Jónsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK