Hlutafjárútboð Play hefst 24. júní

Opinn kynningarfundur verður haldinn 22. júní.
Opinn kynningarfundur verður haldinn 22. júní.

Hlutafjárútboð flugfélagsins Play hefst klukkan 10 fimmtudaginn 24. júní og stendur yfir til klukkan 16 daginn eftir.

Opinn kynningarfundur vegna útboðsins verður haldinn kl. 8.30 þriðjudaginn 22. júní, að því er segir á vef Arctica Finance.

Boðnir verða til sölu samtals 221.906.800 hlutir að nafnverði í formi nýrra hlutabréfa í Fly Play hf.

Tveir áskriftarmöguleikar eru í boði, hvor í sínu útboðinu, með þátttöku í áskriftarleið A og áskriftarleið B, sem eru ólíkar hvað varðar stærð áskrifta og úthlutun. Verð í áskriftarleið A er 18 kr./hlut og verð í áskriftarleið B verður innan verðbilsins 18-20 kr./hlut.

Áætlað er að niðurstöður útboðanna verði kynntar 25. júní og niðurstöður úthlutunar 28. júní.

Reiknað er með að almenn viðskipti með hluti í flugfélaginu hefjist föstudaginn 9. júlí. Arctica Finance er umsjónaraðili útboðanna og Arion banki söluaðili ásamt Arctica Finance.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK