Solid Clouds stækkar við sig

Þau Josh Raab, Jana Olsanska og Franklín Þór Vale.
Þau Josh Raab, Jana Olsanska og Franklín Þór Vale. Ljósmynd úr tilkynningu Solid Clouds

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds réði til sín nýtt starfsfólk nú á dögunum. Það eru framendaforritararnir Jana Olsanska og Franklín Þór Vale sem tóku nýlega til starfa og sjá um notendaviðmót nýs tölvuleiks sem Solid Clouds hefur í vinnslu. Þá er nýjasti starfsmaður fyrirtækisins Josh Raab, leikjahönnuður frá Bandaríkjunum.

Josh býr yfir mikilli reynslu úr tölvuleikjaheiminum, og hefur áður starfað á Íslandi við tölvuleikinn Sumer. Hann er með BA próf úr Columbia háskóla, og MFA gráðu í leikjahönnuð frá NYU Game Center.

Franklín Þór er um þessar mundir að ljúka BSc námi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur starfað sem framendaforritari og fengist við kennslu, auk þess að fást við eigin verkefni.

Jana er tékknesk að uppruna og vann áður sem vefforritari í Prag. Hún kom fyrst til Íslands til að ferðast og vinna í fjarvinnu, en tók ákvörðun um að aflýsa heimferðinni og vera kyrr á Íslandi þegar henni bauðst vinna hjá Solid Clouds.

Óhætt er að segja að Solid Clouds sé á fljúgandi siglingu þessa dagana, en auk þess að vinna sem áður sagði að nýjum tölvuleik, Starborne: Frontiers, sem er væntanlegur á næsta ári, verður félagið senn fyrsta íslenska tölvuleikjafyrirtækið til að verða skráð í kauphöllina.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK