Hlutabréf Íslandsbanka rjúka upp

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti í Kauphöll …
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti í Kauphöll Íslands í morgun. Ljósmynd/Íslandsbanki

Mikill fögnuður braust út þegar Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti í Kauphöll Íslands, þar sem Íslandsbanki hf. var skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland í morgun. Hlutabréf í bankanum hafa rokið upp um 20% frá útboðsgenginu úr 79 kr. á hlut í 95 kr. á hlut í dag. 

Ljósmynd/Íslandsbanki

Um 490 milljarða umframeftirspurn myndaðist þegar bankinn réðst í hlutafjárútboð fyrr í mánuðinum og því augljóst að mikil spurn er eftir hlutabréfum í bankanum. Heildarsöluvirði útboðsins var um 55 milljarðar. Auðkenni bankans á markaði er ISB.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK