Play flýgur til Kanarí

Þota Play.
Þota Play. Ljósmynd/Birgir Steinar

Flugfélagið PLAY ætlar að hefja flug til Kanarí í desember á þessu ári. Flogið verður einu sinni í viku á miðvikudögum til 13. apríl 2022. 

Kanaríeyjar hafa verið vinsæll áfangastaður Íslendinga undanfarin ár, ekki síst á veturna. PLAY mun áfram bjóða upp á ferðir til Tenerife, sem einnig tilheyrir Kanaríeyjaklasanum.

Á morgun fer fyrsta flug PLAY í loftið og er förinni heitið til London. „Þetta er áfangi sem starfsmenn PLAY hafa lengi beðið eftir og mikil vinna, elja og þrautseigja að baki því að komast loksins í loftið,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra PLAY, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK