Kveður Amazon og heldur út í geim

Jeff Bezos, stofnandi Amazon, skilur eftir sig varanlega arfleifð í …
Jeff Bezos, stofnandi Amazon, skilur eftir sig varanlega arfleifð í viðskiptaheiminum. Í dag lét hann formlega af störfum sem forstjóri Amazon og liggur leið hans út í geim, að minnsta kosti um sinn. AFP

Jeff Bezos, stofn­andi Amazon, lætur í dag formlega af störfum sem forstjóri fyrirtækisins. Bezos heldur á ný mið, meðal annars út í geim. Andy Jassy, sem hefur stýr­t vefþjón­ustu Amazon, tekur við starfi for­stjóra en Bezos mun gegna stjórnarformennsku hjá Amazon. 

Bezos, sem er 57 ára, greindi frá því í febrúar að hann hygðist stíga til hliðar sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins á þessu ári. Ljóst er að hann skilur eftir sig varanlega arfleifð í viðskiptaheiminum. Bezos fór frá því að taka sjálfur saman pantanir í bílskúrnum sínum og keyra á næsta pósthús yfir í að stýra valdamesta fyrirtæki heims. Og það aðeins á 27 árum. 

Um 50 þúsund milljarðar í hagnað

Óhætt er að fullyrða að Bezos hætti á toppnum en Amazon er í dag metið á yfir 1,7 billjónir (e. trillion) dollara og var hagnaður net­versl­un­arinnar og tækn­iris­ans 386 milljarðar dollarar á síðasta ári eða sem nemur rúmum 48 þúsund milljörðum króna. 

„Bezos var frumkvöðull sem kynnti til sögunnar mörg þægindi sem fólk tekur sem sjálfsögðum hlut, líkt og að kaupa eitthvað á netinu og fá það sent heim að dyrum næsta dag,“ segir Darrel West, stjórnandi hjá Brookings-stofnuninni, sem einblínir á nýjungar í tæknigeiranum. Netverslanageirinn á Bezos margt að þakka, segir West. 

Bezos „hafði innsæi fyrir hinu rétta“ þegar kom að ákvarðanatöku á markaðnum, hefur AFP-fréttastofan eftir Roger Kay, greinanda hjá Endpoint Technologies Associates. Kay fer fögrum orðum um Bezos og lýsir honum sem einum af bestu viðskiptamönnum sinnar kynslóðar. 

Amazon-veldið gerði Bezos að ríkasta manni í heimi og er hann metinn á 200 milljarða dollara, jafnvirði 25 þúsund milljarða króna. 

Bezos hefur dreymt um að fara út í geim og …
Bezos hefur dreymt um að fara út í geim og mun það að öllum líkindum rætast síðar í þessum mánuði þegar hann verður í fyrsta mannaða geimfari Blue Origin. AFP

Setur stefnuna út í geim

Bezos hættir nú afskiptum af daglegum rekstri Amazon og hyggst einbeita sér að geimfyrirtæki sínu, Blue Origin, og setur hann stefnuna á geiminn síðar í þessum mánuði. 

Hver framtíð Amazon verður, verður að koma í ljós en fyrirtækið hefur reglulega verið gagnrýnt fyrir meðferð á starfsfólki. Þrátt fyrir að uppfylla skilyrði um lágmarkslaun og ýmis önnur kjör hefur ítrekuð áhersla fyrirtækisins á afkastagetu og eftirlit með starfsfólki verið harðlega gagnrýnd. 

Bezos brást við gagnrýninni fyrr á þessu ári með herferð undir yfirskriftinni „Besta starfsfólk jarðar og öruggasti vinnustaður á jörðinni“. Nú hefur Bezos hins vegar sagt skilið við dagleg störf hjá Amazon og ætlar að yfirgefa jörðina, að minnsta kosti um sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK