Krefur forstjóra ÁTVR um afsökunarbeiðni

Arnar Sigurðsson og Ívar Arndal.
Arnar Sigurðsson og Ívar Arndal. Samsett mynd

Arnar Sigurðsson, eigandi Sante ehf. og franska félagsins Santewines SAS, segir ásakanir forstjóra ÁTVR um skattsvik og undanskot vera rógburð. Arnar krefst þess að kærur til lögreglu og skattayfirvalda verði dregnar til baka án tafar og að afsökunarbeiðni verði birt með heilsíðu auglýsingum í Morgunblaðinu, Viðskiptablaðinu og Fréttablaðinu og vefborðum í eina viku á vefsíðum mbl.is og Vísis. 

Í bréfi sem Arnar sendir Ívari Arndal, forstjóra Vínbúðarinnar, í dag kemur fram að í afsökunarbeiðninni eigi að koma fram að kærurnar hafi verið dregnar til baka þar sem ekki hafi reynst fótur fyrir þeim og að beðist sé afsökunar á því að hafa haft frammi rangar sakagiftir gagnvart Arnari og félögunum tveimur.

Veitir Arnar Ívari tveggja daga frest, til klukkan 15 á miðvikudag, til að verða við kröfunni. 

Fram kom í Morgunblaðinu fyrir helgi að ÁTVR hefði lagt fram kæru á hendur félögunum tveimur og Arnari. Í kæruskjali til lögreglu var fullyrt að franska fyrirtækið innheimti 11% virðisaukaskatt af seldum vörum án þess að vera með svokallað virðisaukaskattsnúmer. Umsvif fyrirtækisins bendi því til að undanskot fyrirtækisins á virðisaukaskatti nemi „veru­leg­um fjár­hæðum“.

Morgunblaðið greindi einnig frá því um helgina að Arnar hyggist leggja fram kæru á hendur Ívari fyrir rangar sakargiftir. 

Bréf Arnars til Ívars í heild sinni: 

Þann 28. júní 2021 sendir þú kæru til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem undirritaður, Sante ehf. og franska félagið Santewines SAS er sakað um brot á lögum um virðisaukaskatt. Í kærunni kemur m.a. fram að að franska félagið hafi hvorki íslenska kennitölu né virðisaukaskattsnúmer. Að félagið hafi enga heimild til þess að innheimta virðisaukaskatt hér á landi. Sama dag sendir þú kæru til Skattsins vegna sömu ávirðinga. Í því bréfi er fullyrt að undanskot á virðisaukaskatti hljóti að nema verulegum fjárhæðum. Þá kemur fram að þú teljir vandasamt að sjá að Santewines SAS standi skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs.

Það er auðvitað ekki vandasamt að sjá hvort Santewines SAS standi skil á virðisaukaskatti. Það er heldur ekki vandasamt að sjá að fullnægjandi rannsókn hefur ekki farið fram á ofangreindum forsendum. Það er alvarlegt mál og hlýtur að vera fordæmalaust að forstjóri ríkisstofnunar komi fram opinberlega og ásaki samkeppnisaðila ranglega um skattalagabrot. Með lágmarks fyrirhöfn hefði mátt leiða í ljós þá augljósu staðreynd að Santewines SAS hefur bæði íslenska kennitölu og virðisaukaskattsnúmer. Félagið gefur út reikninga með 11% virðisaukaskatti í samræmi við gildandi lög og hefur gert frá því félagið hóf starfsemi hér á landi. Hin íslenska kennitala og virðisaukaskattsnúmer voru skráð hjá Skattinum í apríl sl. en félagið hóf starfsemi í maí. Gjalddagi virðisaukaskatts er einum mánuði og fimm dögum eftir lok hvers almenns uppgjörstímabils sem í tilviki Santewines SAS er tveir mánuðir. Til dæmis er gjalddagi vegna maí og júní þann 5. ágúst nk. Innheimtur virðisaukaskattur frá upphafi starfseminnar er því ekki í gjalddaga fallinn. Engin vanskil hafa orðið. Öll aðflutningsgjöld vegna innflutnings Sante ehf. á áfengi, þ.m.t. áfengisgjald, virðisaukaskattur og skilagjald hefur þegar verið greitt til ríkissjóðs. Allar ásakanir um skattsvik og undanskot eru rógburður.

Engum blöðum er um það að fletta að ásakanir þínar á hendur mér persónulega og félögunum Sante ehf. og Santewines SAS eru tilhæfulausar með öllu. Að bera saklausa menn röngum sakargiftum er refsivert. Samkvæmt 148. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 skal hver sem með rangri kæru leitast við að koma því til leiðar, að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, sæta fangelsi allt að 10 árum. Þá varðar það fangelsi allt að 2 árum að hafa ærumeiðandi aðdróttun í frammi gegn betri vitund, sbr. 236. gr. almennra hegningarlaga. Undanskot á virðisaukaskatti er alvarlegt lögbrot sem varðar þungri refsingu. Það er þess vegna þeim mun alvarlegra að bera saklausan mann sakargiftum um brot á lögum um virðisaukaskatt. Ekki er útilokað að háttsemi þín varði við fleiri ákvæði almennra hegningarlaga.

Með bréfi þessu er þess krafist að framangreindar kærur verði dregnar til baka án tafar og afsökunarbeiðni verði birt með heilsíðu auglýsingum í Morgunblaðinu, Viðskiptablaðinu og Fréttablaðinu og vefborðum í eina viku (7 daga) á vefsíðunum visir.is og mbl.is. Í afsökunarbeiðninni komi fram að kærurnar hafi verið dregnar til baka þar sem ekki hafi reynst fótur fyrir þeim og að beðist sé afsökunar á því að hafa haft frammi rangar sakargiftir gagnvart mér og félögunum Sante ehf. og Santewines SAS. Veittur er frestur til þess að verða við ofangreindri kröfu þangað til klukkan 15:00 miðvikudaginn 21. júlí nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK