SRX ehf. og Ormsson ehf. sameinast

Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri SRX.
Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri SRX. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið TT3 ehf. hefur keypt allt hlutafé í raftækjaheildversluninni SRX ehf. og Ormsson ehf. Með kaupunum sameinast fyrirtækin SRX ehf. og Ormsson ehf. Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri SRX, mun stýra sameinuðu félagi en hann segist sjá mikil tækifæri með kaupunum.

„Ormsson er sterkt vörumerki og í fyrirtækinu er mikið af reyndu starfsfólki með mikla þekkingu. Við höfum trú á vörumerkinu Ormsson til framtíðar. Sameining fyrirtækjanna skilar hagkvæmari rekstri, auknu vöruframboði og bættu aðgengi að vörum á markaði sem mun stuðla að aukinni þjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags,“ segir Kjartan í tilkynningu frá SRX.

Áætluð velta um sex milljarðar króna

Kaup TT3 ehf. á hlutafé SRX ehf. og Ormsson ehf. hafa verið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu. Áætlað er að hjá sameinuðu félagi muni starfa um 60 manns og að ársvelta verði um sex milljarðar króna. Eigendur fyrirtækisins eru Kjartan Örn Sigurðsson, Ingvi Týr Tómasson og Guðmundur Pálmason.

SRX hefur á undanförnum árum verið ein af stærstu raftækjaheildverslunum landsins og eru vöruflokkar fyrirtækisins farsímar, rafmagnshlaupahjól, heyrnartól, spjaldtölvur og aðrar vinsælar vörur á markaði. 

Meginstarfsemi Ormsson er innflutningur og sala á heimilistækjum, sjónvörpum og hljómtækjum auk innflutnings og sölu á eldhúsinnréttingum.

Með sameiningu fyrirtækja koma ný tækifæri

Fráfarandi forstjóri og aðaleigandi Ormsson, Andrés B. Sigurðsson, segist þakklátur þeim sem hafa verið tengdir fyrirtækinu í áratugi en jafnframt sjái hann ný tækifæri til vaxtar með nýjum eigendum.

„Eigendur Ormsson ehf., sem hafa verið tengdir fyrirtækinu í áratugi, vilja þakka samstarf við fyrirtæki og einstaklinga, sem hafa verið traustur viðskiptavinahópur í nær hundrað ára sögu þess. Nýir eigendur eru reyndir í viðskiptum hér á landi og erlendis. Með sameiningu fyrirtækja koma ný tækifæri til vaxtar og þróunar til lengri tíma. Óskum við, fyrrverandi eigendur, hinum nýju farsældar og megi tryggir viðskiptamenn njóta góðra viðskipta og samstarfs til framtíðar,“ segir Andrés í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK