Play bætir við ferðum til Alicante og Tenerife

Play ætlar í fleiri ferðir til sólarstranda á Spáni.
Play ætlar í fleiri ferðir til sólarstranda á Spáni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugfélagið Play hefur bætt við einni flugferð á viku til og frá Alicante á Spáni í vetraráætlun sína. Í fréttatilkynningu þar um segir að félagið vilji mæta eftirspurn eftir þess konar ferðum.

Þá hefur einnig tveimur flugferðum félagsins á viku til Tenerife. Stutt er síðan tilkynnt var um að Play hygðist hefja reglulegar flugferðir til og frá Bandaríkjunum.

„Þrátt fyrir að það hafi viðrað vel á landann sums staðar á landinu í sumar þá er ljóst að eftirspurnin eftir sólarlandaferðunum hjá okkur hefur verið góð enda verðið hvetjandi. Með þessu aukna framboði erum við að koma til móts við viðskiptavini okkar sem vilja fara að skipuleggja sumarfríið á næsta ári og vilja eiga kost á að ferðast með PLAY,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóri PLAY í fréttatilkynningunni.

Hann segist þannig reikna með að fleiri flugferðum verði bætt við á báða staði síðar í vetur, enda hafi flug til Alicante verið mjög eftirsótt.

Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir Jónsson, forstjóri Play. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK